“Jæja, ungi herra Peter,” sagði eldri maður sem stóð á brautarpalli 9 ¾ við hliðina á smávöxnum, skolhærðum dreng sem hélt þéttingsfast utan um bakpokann sinn. “Farangurinn þinn er kominn um borð og ef ég væri þú myndi ég drífa mig inn og ná sæti, það er alltaf fljótt að fyllast.” Smávaxni drengurinn, Peter, sneri sér að eldri manninum. “Takk Brian, fyrir að fara með mér hingað.” Hann leit aftur að lestinni og titraði af samblöndu af spenningi og stressi. Brian horfði samúðarfullur á litla...