Jæja. Þá ætla ég að taka fyrir hvað er að gerast í miðausturriðlinum. Detroit Pistons: 39-27 Þeir hafa komið á óvart í vetur og eru í öðru sæti austurdeildarinnar. Lykilinn að þeir vinni leiki er að Jerry Stackhouse spili vel. Auk hans kemur Cliff Robinson með mikla reynslu og hefur verið að spila vel. Þó ekki megi vanmeta þá, sé ég þá ekki komast mjög langt í úrslitakeppninni. Milwaukee Bucks: 36-30 Þetta lið hefur mikið af mjög sterkum leikmönnum en hefur ekki alveg verið að spila eins vel...