Stærðfræðingar og Bond áhugamenn hafa uppgvötað formúluna fyrir hina fullkomnu Bond stúlku sem er ómissanleg í þessar langlífu myndir um njósnara hennar hátignar, James Bond. Samkvæmt formúlunni þá á hún að vera brúnhærð, brúneygð, bresk og 170cm á hæð. Þessir rannsóknarmenn fóru yfir samtals 20 Bond myndir á ‘Bond, James Bond’ sýningunni á Vísindasafninu í London. Á þessum 40 árum sem Bond hefur verið uppi hefur hann fallið fyrir 21 brúnhærðri, 12 ljóshærðum, 5 dökkhærðum og...