Sælir, nú langaði mig svona m.a. til að reyna að pumpa smá lífi í Jeppadálkinn hér að spyrja ykkur hvað hefði verið eftirminnilegasta eða bjánalegasta jeppaferð sem að þið hefðuð farið í, t.d. þar sem einföldustu hlutir klikka og gera ferðina eftirminnilega. Svona til að byrja þá segi ég frá “jeppaferð” sem að ég og bróðir minn fórum í fyrir tæpu ári síðan á minni fyrstu jeppadruslu. Við bræður fórum upp í bláfjöll að prufa drusluna. Þetta var Ramcharger á 44" sem mér hafði áskotnast...