Góðar súpur eru gulls ígildi. Hér er ein uppskrift ættuð úr matreiðslubók (ekki eftir mig sem sé) sem ég er búinn að týna auk þess sem búið er bæta eitthvað í hana - en að öðru leyti afar klassísk uppskrift: 6-8 stórar kartöflur 2 gulrætur 1-2 hvítlauksrif 1-2 laukar salt og pipar steinselja, fersk beikon (gott beikon) Laukur skorinn smátt, blaðlaukur hreinsaður og skorinn (græni hlutinn smærra), gulrætur í netta bita og allt í stóran pott og steikt létt upp úr olíu. Steinselju og hvítlauki...