Jólafríið gaf manni loksins smá tíma til að koma sér almennilega inní þessa nýjustu útgáfu af leiknum og ætli flestir séu ekki sammála um að þetta sé útgáfan sem átti að koma út fyrir ári síðan, enda var cm4 alger hörmung þrátt fyrir alla plástrana. En hvað um það, þessi grein mín á ekki að vera neitt væl. Til að hafa svolítið gaman af þessu ákvað ég að taka við miðlungs-slöku 1. deildar liði og sjá bara til hvernig færi. Leist vel á Cardiff (af hverju mega lið frá Wales vera með í ensku...