Svo getur maður gert eins og ég, fengið að gera mistökin sjálfur, gera það sem maður vill þegar maður vill það:) Hef gert það undanfarin ár, flutt erlendis og gert allt sem mér dettur í hug. Og ég veit að ég hefði séð eftir því ef ég hefði ekki gert það! Ég hef miklu meiri reynslu af lífinu en jafnaldrar mínir, varð fullorðin á undan hinum, kann að redda mér og halda heimili. Flý ekki heim til mömmu heldur bjarga mér. Þetta hefur gert mig sjálfstæða og þroskaðri en ég væri annars. Takk fyrir mig:)