Ég bý erlendis og leigi hjá vini mínum sem á mjög fallegan husky-hund. Hundurinn er mjög vinalegur, en gjörsamlega illa upp alinn. Hann er sem betur fer búinn að læra að fara ekki inn í herbergið mitt, en hann á það til meðal annars að skíta á gólfið, þó hann fari út a.m.k. 3svar sinnum á dag. Það er heldur ekki hægt að sleppa honum lausum, því hann kemur ekki þegar kallað er á hann nema hann haldi að maður ætli að skilja hann eftir. Hann er hér um bil 4 ára gamall og ég veit að hann getur...