Hvað er að gerast á þessu flæðiskeri sem við búum á? Mér sýnist á öllu að við séum að breytast í Amerískan útkjálka með einkavæðingu í sinni verstu mynd flæðandi yfir allt. Kaupmaðurinn á horninu er nú endanlega horfinn og einn risi sér um að selja fólki mat á því verði sem honum sýnist hverju sinni, búðir eru flestar orðnar markaðsvæddar og sálarlausar helst staðsettar inni í stórum versunarmiðstöðvum þar sem fólk nýtur þess að versla fjöldaframleiddar merkjavörur. Ef þú vilt borða úti...