Sepp Blatter, forseti FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandsins, segir að talsverðar líkur séu á því að úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í Suður-Afríku árið 2010 verði leikin á gervigrasi. „Við höfum lagt til, enda þótt það sé ekki ennþá ákveðið endanlega, að HM 2010 verði leikin á gervigrasi. Ég tel að það sé kominn tími til fyrir þennan heimshluta að einbeita sér að gervigrasinu,“ sagði Blatter við BBC að lokinni úrslitakeppni Afríkumótsins í Ghana. FIFA vinnur um þessar mundir að byggingu...