Sagan byrjar 13. okt þegar ég og vinkona mín (sem við skulum kalla Bella) vorum á leið á ráðstefnu í Eistlandi. Áætlað var að hittast kl 5:30 á loftleiðum taka rútuna þaðan á Loftstöð fljúga til Stokkhólms og áfram þaðan til Tallin. Ég var mætt einni mínútu áður en rútan átti að fara því það hafði snjóað um nóttina svo mikil hálka var úti og allir á sumardekkjum. Ég strunsa inn í rútuna og leita að Bellu sem var með flugmiðana okkar, en hún er hvergi sjáanleg svo leggur rútan af stað og...