Hér er mín uppskrift: Jólasmákökur með súkkulaði og hnetum 225 g smjör 2 dl sykur 2 dl púðursykur 1 tsk vanillusykur 1/2 tsk. vatn 2 egg 300 g hveiti 1 tsk matarsódi 1 tsk salt 300 g suðusúkkulaði (saxað) 2 1/4 dl saxaðar heslihnetur - Hræra saman smjöri, sykri, vatni og eggjum. - Sigta svo hveiti, matarsóda og salt út í. - Blanda súkkulaði og hnetum samanvið, setja í litla toppa á plötu og baka í miðjum ofni í 10 mínútur.