Eins og oft hefur komið fram þá reynir Gérard Houllier ávallt af fremsta megni að eiga góð samskipti við landsliðsþjálfara leikmanna sinna. Sumir kjósa að láta leikmenn gera sér upp meiðsli þegar kemur að landsleikjum (nefnum engin nöfn en fyrsti stafurinn er Giggs) en Houllier vill styrkja þessi tengsl og virðist þá frekar geta verið með fingurna í þessum málum. Hann og Sven Göran Eriksson, enski landsliðseinvaldurinn, hafa rætt fram og til baka um mál Steven Gerrard. Það er enginn vafi á...