Óskarsverðlaunaleikkonan Reese Witherspoon og eiginmaður hennar leikarinn Ryan Phillippe, hafa ákveðið að skilja. Þau giftu sig árið 1999 eftir að hafa leikið saman í myndinni Cruel Intentions. Eiga þau tvö börn saman. „Þau munu áfram vera náin sinni fjölskyldu,“ sagði í yfirlýsingu upplýsingafulltrúa þeirra. „Okkur þykir leitt að tilkynna að Reese og Ryan hafi ákveðið að skilja. Biðjum við ykkur að virða einkalíf þeirra og öryggi barna þeirra.”Heimildir herma að Witherspoon hafi rætt við...