Ég er svolítið hissa á þessari umræðu um hvert við eigum að halla okkur í sambandi við Íraksdeiluna. Ef að við stöndum ekki með Bandaríkjunum eigum við á hættu að missa herverndina á Miðnesheiðinni. Það getur haft alvarlegar afleiðingar. Við vitum aldrei hvað kommúninstunum dettur í hug. Þeir svífast einskis til þess að komast til valda. Þeir eru vel vopnaðir þó að við sjáum það ekki, þeir fela vopnin. Hvað geta bræður Steingríms J. verið að gera í Þistilfirði annað en að passa skriðdrekana...