Gengið hefur verið frá samningi við íþróttavöruverslunina Afreksvörur í Síðumúla í Reykjavík um að vera með netverslun á merkisberar.is. Að sögn Daníels Smára sem rekur Afreksvörur og er landsfrægur hlaupari, er þetta kærkomið tækifæri til að efla verslunina og hækka þjónustustigið. Nú geta allir hvar sem er á landinu verslað íþróttavörur frá Afreksvörum og fengið þær sendar heim. Úrvalið í netversluninni verður svipað og í versluninni í Síðumúla og stefnt að því að auka úrvalið síðan jafnt...