Hér er ljóð sem ég samdi eftir að hafa gengið einn á fjallstind í góðu veðri.Það heitir: Frelsi. Þegar bjátar á, rétti ég úr mér og horfi til fjalla. Mæli þau út, veg og met- hvar er stígur, hvar er leið ? Set mér markmið – ná á toppinn. Sameinast náttúrunni, legg andlit í mosann drekk úr læknum- passa að stíga ekki á köngulærnar. Næ á toppinn um síðir, og þakka Guði líf mitt og heilsu og þau forréttindi að hafa fæðst í heiminn - einmitt á þessum stað -. Hverf síðan aftur til starfa...