Þótt að þessi þáttur sé ekki einn af þáttunum í Sjónvarpsefni á Huga verð ég að koma honum á framfæri því að mínu mati er þetta besti þátturinn á dagskrá í íslensku sjónvarpi í dag. Þátturinn gerist í fangelsinu Oz, sem heitir reyndar fullu nafni Oswald Maximum Penitentiary, og er heldur betur strangt og erfitt að lifa í því. Það eru allskyns klíkur í Oz, eins og t.d. múslimarnir, aríarnir, írska klíkan, blökkumennirnir, Spánverjarnir, hommarnir, mótmælendurnir o.s.frv. sem berjast...