Nicholas Cage leikur Ben Gates, sem hefur eytt ævi sinni í leit að földum risafjársjóði, á grundvelli vísbendingar sem forfeður hans hafa varðveitt allt frá frelsisstríði Bandaríkjanna. Hann kemst loks á sporið og telur sig hafa komist að því að á bakhlið sjálfstæðisyfirlýsingarinnar sé fjársjóðskort. Auðvitað trúir honum enginn, nema fyrrum samstarfsmaður hans (Sean Bean) sem ætlar að stela plagginu - og til þess að koma í veg fyrir það ákveður Gates að stela því sjálfur. National Treasure...