Hún sér lítið blóm, tekur það upp og rúllar því milli fingranna sinna. Litla blómið er blátt með svörtum kjarna. Þetta blóm er ansi furðulegt, hugsar hún með sjálfri sér meðan hún plokkar laufin af, eitt í einu. Himininn er heiðskýr, enda hinn besti sumardagur. Stiklandi yfir ána sér hún lítinn gullitaðan fisk. Hún stoppar og veltir fyrir sér hversu skrýtin áferðin er á þessum litla fisk. Hana langar að snerta hann, en fiskurinn syndir of hratt og er þotin úr augnsýn á örskotastundu....