Jæja, þetta er nú fyrsta greinin mín á þessu áhugamáli og vonandi að hún takist sem best. Ég ætla nú ekkert að vera að skálda upp einhverja byrjun hérna heldur bara koma mér beint að efninu. Ég ákvað að taka við Sunderland. Ég ætla að segja meira frá seinni tímabilinu heldur en því fyrra, því það fyrra var kannski ekki eins spennandi og það seinna. [Season 03/04] Stjórnin krafðist þess að ég myndi komast upp og ég stefndi auðvitað á það. Ég hafði ekki mikla peninga til þess að kaupa leikmenn...