Fyrir stjórnendur Habitat vil ég byðja að lesa ekki þessa grein, sömuleiðis starfsmenn eða þá sem hyggjast kæra mig ef ég gagnrýni fyrirtækið. Ég fór í Habitat í Bæjarlind um daginn. Ætlaði að skoða skáp í herbergið mitt. Mig hafði lengi grunað að mér þætti verslunin ekki falleg. En þetta gerði útslagið. Eins og margir vita er verslunin á þremur hæðum, neðst er rúmgóður salur sem hýsir smáhluta- og stofudeild verslunarinnar og upp frá honum opinn stigi upp á 2. hæð. sem geymir sömuleiðis...