Í dag var gengið frá því að Oliver Dacourt, 27 ára franskur miðjumaður, gengi til liðs við Roma frá Leeds. Um er að ræða lánssamning út tímabilið með möguleika á kaupum í lok tímabils, ef Rómverjum líkar þá eitthvað við kauða. Það er búið að ganga frá kaupverðinu en það hefur að því er ég veit, ekki enn verið gefið upp. Dacourt gekk til liðs við Leeds í mai árið 2000 fyrir 7 milljónir punda frá Lens í Frakklandi. Dacourt hefur þurft að leita á önnur mið eftir stjóraskipti hjá Leeds en hann...