Það var um nótt, ég lá í laut við lygna tjörn, og horfði upp í hvolfþak veraldar. Tunglið óð í silfurskýjum, net úr svölum loga, geislandi þráðum, fínni en silki. Ólýsanleg þrá heltók mig……… Dulin..kvalin þrá eftir sjörnubirtu, fegurð sem vekur ólýsanlegan fögnuð. - Dásemdir alheimsins. - Slæðuþoka á siglingu sinni, útí fjarskann, hvislandi sín hátignarlegu leyndarmál að þeim, sem sigla á hafi geimsins. Straumrás æðri vitundar,full af kærleik hvislaði mjúkri stjörnubirtu í hjarta mitt. Ég...