Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

nonninn
nonninn Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
88 stig

Miðausturlönd + Afríka (9 álit)

í Ferðalög fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Eftir ferð um suður-Ameríku 2005-2006 (Ekvador, Perú, Bólivía, Chile, Argentína, Urugvæ og Brasilía. nonnidelnorte.blogspot.com) hyggst ég skoða mig um í miðausturlöndum og austur-Afríku í janúar 2007. Eins og planið er í dag (nokkuð sem gæti og sennilega mun breytast heilmikið þegar líður að brottför) þá eru þetta fimm mánuðir um það helsta sem þetta svæði býður ævintýraþyrstum ferðalöngum uppá. Ísrael, Jórdanía, Egyptaland, Súdan, Eþíópía, Erítrea, Djíbúti, Kenýa, Úganda, Rwanda, Tanzanía,...

Ruud van Nistelooy hinn mikli.... (11 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Eftir að hafa séð Ruud van Nistelrooy sýna töfra sína á fótboltavellinum síðustu ár verð ég bara að viðurkenna eitt: markaskorari er hann mikill en ekki heilsteyptur knattspyrnumaður, langt því frá. Frábær vítabani, klárar flest færin sín en hæfileikar hans eru því miður takmarkaðir við það. Um 95% marka hans eru víti eða línupot og er hann einfaldlega leiðinlegur leikmaður. Einnig fara í taugarnar mínar svona leikmenn sem breytast í postulínsdúkkur strax og komið er inn fyrir vítateig, og...

Smá hjálp frá tónlistaséníum... (14 álit)

í Tilveran fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ég er að leita að upplýsingum um lag sem ég frétti einu sinna af. Lagið heitir “three” eða “three minutes” eða eitthvað í þá áttina og er einfaldlega þriggja mínútna þögn. Þeir sem gætu hjálpað mér eiga inni hjá mér greiða og öruggan stað á himnum.

Jólin? Ba! (1 álit)

í Hátíðir fyrir 22 árum, 1 mánuði
Nú þegar jólin fara að ganga í garð kemur það tímabil ársins sem ég fyrirlít hvað mest. Þetta tímabil er nóvember eins og hann leggur sig og byrjunin á desember. Maður fer í Kringluna og þar blasir við manni jólaskraut hvert sem maður lítur, allir kátir en það eina sem ég hugsa er: “Helvítis jólaskraut, komið beint frá Satani sjálfum.” Manni langar bara að rífa þetta helvíti niður, brenna það og míga á öskuna.“ Svo þessi jólalög glymjandi alveg frá október fá mann til að æla. Allar búðir ota...

Sharon út - ???? inn (20 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það ætti að vera deginum ljósara núna að Ariel Sharon er ekki maðurinn til að koma á friði milli Ísraels og Palestínu. Undir hans stjórn eru fleiri og fleiri saklausir Palestínumenn að deyja. Maður heyrir það oftar og oftar að hann sendir skriðdreka og jarðýtur og jafnar heil hverfi Palestínumanna við jörðu. Ekki bætir orðspor Sharons úr hernum úr skák, en hann hefur verið sakaður um stríðsglæpi… það er að segja líka áður en hann varð forseti. Ef einhver er ekki sammála þá fær hann...

Kasmír smasmír (3 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hvað er þetta Kasmír síðu rugl? Það stendur hja mér síðan mín, en svo þegar ég klikka á það kemur bara einhver error. Hvernig geri ég síðu og til hvers?

Stig smig (5 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Til hvers eru stig? Hvað gera þau? Þetta virðist skipta suma voða miklu máli. Ég vil vita af hverju.

Hvar er MacGyver? (17 álit)

í Sjónvarpsefni fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það er eitt sem ég þoli ekki við íslenskt sjónvarp. Ég veit að það er ekki stórt “budget” hjá þessum stöðvum en ef þær þurfa að spara, af hverju að kaupa einhverja hundleiðinlega þætti bara til að fylla upp í bara út af því að þeir eru ódýrir? Af hverju ekki að sýna þessa gömlu góðu þætti sem ég man eftir þegar ég var að alast upp með? Ég er reyndar bara 18 ára svo ég er ekki að tala um þöglu myndirnar, bara fara aftur um svona 10 ár eða svo. MacGyver var t.d. uppáhaldsþátturinn minn,...

Ég sakna Andra :( (4 álit)

í Manager leikir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég sakna Andra Sigþórs úr cm 99/00. Af hverju þurftu þeir að gera hann lélegri? Af hverju?!!! Ég var Juve, keypti hann og hann brilleraði. Ég vann einu sinni HSB Berlin 9-0 í Evrópukeppninni þar sem Andri skoraði sjö. Komdu aftur Andri, gerðu það!

Morgunþreyta? (7 álit)

í Dulspeki fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Það er alveg óþolandi eitt sem gerist stundum fyrir mig. Í skammdeginu þegar ég er að reyna að vakna er maður ótrúlega þreyttur, maður fer á fætur, fær sér morgunmat, og gerir sig til, eða svo heldur maður.. svo allt í einu vaknar maður og maður er búinn að vera uppí rúmi allann tímann og er að verða seinn. Gerist þetta fyrir einhvern annann, þetta er kannski ekki dulspeki en samt skrítið. Af hverju skyldi mann dreyma einhverja morgunvenju? Það gerist aldrei neitt spennandi eins og páfinn í...

Bin Laden?... fínn kall (42 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þegar allt hatrið á Bin Laden stendur sem hæst, og myndir af honum eru límdar á allar skotskífur, hefur einhver spáð í því hvernig þetta varð allt svona. Maður nefnir Bin Laden og hrollur fer niður bakið og fólk hugsar með skelfingu um þennann hættulegasta glæpamann veraldar. Ekki löngu eftir árásinar kom nafn hans upp og Bandaríkjaher var ekki í vafa og hamraði á því að hann væri sá seki. Eitthvað tafðist yfirlýsing Al-Qaeta sem lýsti þessu á hendur sér, enda eru þeir ekki feimnir við það...

Forsetakosningar USA (10 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Er ekki eitthvað að fyrirkomulaginu í kosningakerfi BNA? Sá sem bíður sig fram þarf næga peninga, ef við segjum að peningar geti keypt allt hljóta atkvæði kjósenda þar að vera enginn undantekning. Auglýsingar, ferðir um landið að flytja ræður með allt fylgdarliðið sem því stærra því betri möguleika á að sigra. Hvernig fá frambjóðendur peninga? Með framlögum frá stórum ríkum fyrirtækjasamsteypum. Það er fínt að hafa forseta í landinu sem skuldar fyrirtækinu greiða, misstóran eftir magns...

Beckham, hetja eða rassapi (44 álit)

í Stórmót fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hvaða bull er þetta um að Beckham hafi verið hetja Englands á móti Argentínu? Það var Owen sem fiskaði vítið, er einhver að spá í því?(Til gamans má skoða Beckham rétt áður, til að fá þetta í samhengi) Hann skorar úr einu víti, er hetja leiksins og fólk missir legvatnið yfir því hvað hann sé mikið æði, “uppáhalds sonur Englands”! Hvað eruð þið að hugsa gúbbífiskanir ykkar? Eruð þið svona fljót að gleyma. Beckham negldi í Simeone og það eru enginn vafi á að þessi brottrekstur sendi England...

Frábær drykkur (3 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Þessi dykkur á rætur að rekja til Síberíska munka og er ævagömul uppskrift. Ber hann nafnið Milpsi og er einn hluti mjólk og einn hluti pepsi. Njótið vel.
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok