Eiginkona rokkgoðsins Ozzy Osbournes segist sjá eftir því að hafa hleypt myndatökuliði inn í húsið þeirra til að gera svokallaða raunþætti þar sem fylgst er með lífi þeirra í fjölskyldunni allan daginn. Sharon, sem hefur þjáðst af ristilkrabba segir að sjúkdómurinn hafi einnig valdið því að maður hennar, Ozzy, hafi byrjað að drekka aftur. Hún segir þetta vera síðasta árið alveg pottþétt, þau geti ekki meira. Fyrsta serían sló öll met á MTV og gerði hinn gamla Ozzy og fjölskyldu hans...