Þannig er mál með rentu að ég var hrifinn af stelpu (sem var og er mjög góð vinkona mín) og allt gott og blessað við það, ég gerði allt sem maður gerir og það endaði með að við byrjuðum saman. Þegar við vorum búin að vera saman í ógeðslega stuttan tíma fer hún að verða eitthvað skrítin og ég spyr hvort hún vilji ekki örugglega vera í þessu sambandi, þá fer hún allt í einu ao fá einhverjar efasemdir og við ákveðum bara að hætta saman. Í fyrstu finnst mér það erfitt en svo kemst ég yfir það,...