Ég hef verið að hugsa um það í gegnum tíðina, hverju ég á að svara þegar fólk spyr mig hvers vegna ég vilji endilega hafa ættbók á hundunum mínum . Er þetta bara eintómt snobb eða leið til að geta sífelt grobbað sig yfir að eiga HREINræktaðan hund ? Nei, engan vegin! Ættbókin er, fyrir mér, sönnun þess að ég sé að fá það sem ég ætlaði að kaupa, en ekki bara eitthvað happa-glappa. Með ættbók fæ ég að vita hvaðan hundurinn minn er hverjir eru á bak við hann og hvort að einhver af þeim sé með...