Hún lagfærði hárið, ræskti sig og bankaði svo á hurðina með íburðarmiklum dyrahamri. Til dyra kom kona sem hefði getað verið ráðskona úr gamalli bíómynd, í svarta og hvíta dressinu með þetta asnalega höfuðfat, og spurði um erindið.,,Ég heiti Anita Roberts og ég vildi gjarna fá að tala við herra Whittle.”sagði hún með óstyrkri röddu. ,,Og hvað er erindið, með leyfi”spurði fýluleg ráðskonan. ,,Ég myndi heldur vilja segja honum það sjálf.” sagði Anita en röddin hljómaði ákveðin í þetta skiptið....