Tveir drengir eru að leika sér í fótbolta á Akureyri þegar óður hundur ræðst á annan þeirra. Hinn bregður skjótt við, þrífur stein og drepur hundinn. Blaðamaður frá Degi, sem á leið hjá, sér atvikið og flýtir sér á vettvang til að ræða við pilt. Hann skrifar í minnisbókina sína: “Ungur KA-maður bjargar vini frá óargadýri.” En ég er ekki KA-maður, segir litla hetjan. Fyrirgefðu, ég bara gerði ráð fyrir því, langflestir hérna eru KA-menn, segir blaðamaðurinn og byrjar aftur: “Ungur Þórsari...