Gamlárskvöld á Rauða ljóninu (Let me rewind your order). Paradox mætir frá London í öllu sínu veldi og heldur uppi baneitraðari Drum&Bass harðneskju fram eftir nóttu. Hann er enginn nýgræðlingur og er búinn að vera að síðan 1988 og gaf sinn fyrsta singul út aðeins 17 ára á Moving Shadow útgáfufyrirtækinu. Hann hefur einnig látið heyra í sér frá öðrum útgáfufyrirtækjum eins og t.d. Reinforced, Good Looking, Certificate 18, Partisan, Renegade Hardware, Timeless, Total Science's og fleirum....