Ég fékk þennan jakka í jólagjöf frá kærasta sem átti mótorhjól og bjó erlendis. Við slitum sambandinu áður en ég náði nokkru sinni að nota jakkann, svo hann er til sölu. Hann er frá Spidi, FitForLady línunni. Hann er vatns-og vindheldur, er samt ekki leður. Innan í honum er vattjakki sem hægt er að renna í og úr eftir því hversu heitt er. Sílíkonhlífar eru á herðablöðum og olnbogum. Hann er mjög fallegur í laginu, og mjög þægilegur. Það eru endurskinsrendur á honum, mjög litlar og dömulegar....