Að sjálfsögðu var það bara tímaspursmál hvenær ungstirnið Avril Lavigne myndi vilja sýna það og sanna að hún gæti ekki bara búið til lélega tónlist, heldur líka leikið. Paramount og MTV Films hafa boðið í það að fá að gera smellinn Sk8er Boi (sem er nýstárleg og skemmtileg leið til þess að skrifa Skater Boy) að kvikmynd. Í henni myndi Lavigne leika unga stúlku sem tekur ráðum vinkvenna sinna um að láta skötuna kærastann sinn róa. Einhverju síðar slær hann þá í gegn sem rokkstjarna, og hún...