Eftir að hafa staðið úti í rigningunni í u.þ.b. hálftíma, annað hvort kyrr, horfandi upp í loftið eða að hoppa í stórum polli, ákvað hún að fara inn. Hún hafði bara setið inni og látið sér leiðast, látið þunga vetrarins leika um sig, þegar það byrjaði að rigna. Rigning hafði verið hennar uppáhald frá því að hún var bara barn. Þegar hún var fimm ára höfðu þau þrjú, hún og amma hennar og afi, keyrt hringveginn. Í Skaftafelli hafði gert svo mikla úrkomu að það var hægt að synda í grasinu. Allir...