Þegar ég sá seinni myndina um Harry Potter og félaga, Harry Potter og leyniklefinn, rann dálítið upp fyrir mér. Sérstaklega þegar ég sá endann. Þá kom Hemione inn í Stóra salinn hlaupandi (ansi væmið að mínu mati) og faðmaði Harry. Svo þegar hún ætlaði að heilsa Ron urðu þau eitthvað svo vandræðaleg. Ætli Ron sé hrifinn af Hermione? Þá fór ég að hugsa til fjórðu bókarinnar og hvernig Ron var alltaf svo afbrýðissamur yfir því hvað Hermione og Viktor Krum voru svo mikið saman. Viktor var...