Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

midgardur
midgardur Notandi frá fornöld 464 stig

Stjórnmál (0 álit)

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Myndin sýnir hvernig vægi innfluttrar olíu er stöðugt að aukast í olíunotkun Bandaríkjanna.

Heimspeki (2 álit)

í Heimspeki fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Værum við tvær lífverur í tvívídd?

Merkilega lítið fylgi (10 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Það er með eindæmum hvað Auður frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðsins hefur lítið fylgi, sé notuð reikniregla Davíðs Oddssonar forsætisráðherra, þe. að reikna út frá kosningabærum einstaklingum. Fylgi Auðar er ekki nema rétt rúm 12% alveg ótrúlega lélegt fylgi. Hafa verður í huga að þessi frambjóðandi hafði einn öflugasta fjölmiðil á bakvið sig og “stærsta” stjórnmálaflokk landsins. Ólafur Ragnar beitti sér lítt í kosningabaráttunni, man varla eftir að hafa einu sinni séð frá...

Er heimspeki nauðsynleg? (6 álit)

í Heimspeki fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Nokkuð skemmtileg spurningin. Sjálfur er ég á því að hún er algjörlega ónauðsynleg. Það er frekar að maður ræður ekkert við sig að hugsa heimspekilega um heiminn. Heimspekin er þannig eins og hver önnur eðlishvöt, eitthvað í manni þvingar mann til að hugsa heimspekilega. Ætli það sé ekki bara heilinn, hann hefur yndi af þessu og komi hann upp með góða hugmynd rafmagnast hann allur eins og við kynferðislega fullnægingu, er nema von að maður sé heimspekifíkill :-) M.

Hernaðarhyggja (17 álit)

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Það er merkilegt hvað hernaðarhyggja virðist vera orðin ríkjandi skoðun í dag. Í dag er borinn til grafar forseti sem helst verður minnst í framtíðinni fyrir að skera niður fé til velferðar- og mannúðarmála en þess í stað steypa ríkasta stórveldi sögunnar í stórskuldir vegna uppbyggingar herafla. Í dag eru við síðan að súpa seiðið af þessu. Risaveldi á brauðfótum sem á ekkert nema milljóna herfylki, sprengivélar og kjarnorkuflaugar til að verja sig mönnum með dúkahnífa. Er nema von að maður...

Rökfræðin og stjórnarskráin (19 álit)

í Heimspeki fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Fyrir nokkru kallaði ég eftir því að heimspekingar og rökfræðingar færu fram á ritvöllinn til að sljákka aðeins á rökvillunum sem virðast vaða uppi í pólitískri umræðu. Eins og svar við þeirri bæn, skrifaði Reynir Axelsson, stærðfræðikennari við HÍ þessa líka frábæru grein um synjunarrétt forsetans skv. 26. gr. stjórnarskrárinnar. Þessi grein birtist í sunnudagsblaði Morgunblaðsins 30.maí sl. og hægt að skoða hana í gagnasafni mbl.is Með einfaldri rökfærslu leiðir Reynir út að ráðherra getur...

Skapaði sköpunin Skaparann? (10 álit)

í Heimspeki fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Útfæri fyrri þráð örlítið þar sem spurt er hvort maðurinn hafi skapað guð eða guð manninn. Spurningin er alltof loðin til að henni sé svarað, set því fram nýja spurningu, sem getur orðið ágætis rökþraut í sólbaðinu í sumar: Getur sköpun skapað skapara sinn? M.

Heimspekin og stjórnmál (11 álit)

í Heimspeki fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Hverjar eru skyldur heimspekinnar í dægurmálaumræðunni? Hef stundum verið að velta þessu fyrir mér, þegar málflutningur stjórnmálamanna virðist vera vaðandi í rökskekkjum. Í þessu sambandi þá hef ég aldrei heyrt fréttamenn leita álit heimspekinga á ummælum sem geta orkað tvímælis, né heldur hef ég tekið eftir því að heimspekingar skrifi greinar til að útskýra og benda á mögulegar rökskekkjur. Þetta er í sjálfu sér undarlegt þar sem það er mjög algengt að fréttamenn leiti til alskyns...

Ábyrgðalaust fé (4 álit)

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Nokkuð hefur verið rætt um fé án hirðis. Er hér átt við að þetta fé er ekki á forræði einstaklinga sem eiga það. Þetta er að mörgu leiti kjarnin í rökum frjálshyggjunnar, að eingöngu einstaklingar geta borið fjárhagslega ábyrgð. Fé í eigu samfélags er þannig ábyrgðalaust þar sem ábyrgðin (eignin) er ekki rakinn til eigenda heldur umsjónarmanna, sem geta eytt því án raunverulegrar ábyrgðar, þar sem þetta er ekki þeirra fé, heldur eign félags. Samkvæmt ströngu skilgreiningu ætti hlutafé stórra...

Ílát og innihald (10 álit)

í Heimspeki fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Á heimspeki korkinum er grein um heimspekilega stærðfræðina. Hún hefur fengið mig til að staldra aðeins við pælingar um sambandið á milli ílátsins og innihaldsins. Dæmi um ílát og innihald geta verið babúskur, rússnesku trékonurnar sem eru hverjar inni í annarri. Við getum spurt okkur hvaða babúska sé ílát undir hinar og hverjar eru innihaldið. Er það stærsta babúskan sem hinar eru inni í? Hvað ef hún er opnuð og hinar teknar út, er þá næst stærsta babúskan orðin að ílátinu? Eru kannski...

Virðing Morgunblaðsins (17 álit)

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Í fjölmiðlastríðinu síðustu mánuðina, eftir innkomu Fréttablaðsins, þá sýnist mér að Morgunblaðið hafi glatað ansi mikið af virðingu sinni og trúverðugleika. Þessi stöðuga staðhæfing sjálfstæðismanna um að ritstjórnum fjölmiðla sé fjarstýrt af eigendum og pólitískum öflum þeim tengum, er farið að hitta mbl. illa fyrir. Blaðið virðist vera svo augljós málpípa sjálfstæðisflokksins að undrum sætir. Það veigrar sér mjög við að fjalla á gagnrýninn hátt um mál sem geta verið flokknum óþægileg. Það...

Stefnt á Mars (21 álit)

í Geimvísindi fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Núna á dögunum lýsti forseti Bandaríkjanna því yfir að stefnan hafi verið sett á að senda mannað geimfar til Mars. Hef verið nokkuð hugsi yfir þessari stefnumótun. Ég er þeirrar skoðunar að það skili okkur alltof litlu til að réttlæta kostnaðinn við hana. Mun meiri hagur er að halda áfram að þróa geimþjarka tækni (róbóta) við að kanna yfirborð Mars. Markmiðið væri að byggja um háþróað þjarkasamfélag sem byggir á gríðarlegri gervigreind, aðlögunahæfni og samskiptum manns og tölvu. Það að...

Stærðfræðiþraut -óræði (13 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum
Í framhaldi af umræðum hér að fram um óræðar tölur langar mig til að varpa fram spurningu til að kanna hvort til sé svar við. Þar sem þessi þraut er heimatilbúin þarf kannski aðeins að slípa hana til, en takið viljan fyrir verkið: Ímyndum okkur að við höfum tvær tölvur sem í það óendanlega skrifa út runu af tölum á milli 0 og 9. Tölva (A) á að giska á næstu tölu sem tölva (B) prentar út. Vél (B) er þannig hönnuð hún kemur alltaf upp með aðra tölu en vél (A) giskaði á. Upphafsgildið er 0,1....

Frjáls samkeppni -hvað er það? (8 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum
Ein grundvallar forsenda hagfræði markaðslögmálanna er frjáls samkeppni á sérstök formi, þ.e. fyrirtækin keppa um að ná hylli markaðarins með vöru sem er á hagstæðara verði en vara keppinautanna. Þetta gera fyrirtækin með aukinni hagræðingu í rekstri, tækni við framleiðslu vörunni og við markaðsetningu. Þetta er nokkurn vegin lýsing á þeirri ídeal mynd sem við höfum fallist á þegar rætt er um frjálsa samkeppni. Raunveruleikinn virðist hins vegar annar. Árangur í samkeppni fyrirtækja virðist...

Ef engin heyrir (2 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum
Ef engin er til að heyra, þá heyrist ekkert. Hins vegar geta hljóðbylgjur borist sem er allt annað mál. M.

Hvað er synd? (29 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég var að skoða áhugamál sem nefnist “Syndir”. Greinarhöfundar skrifa þarna um einhver afglöp sem þeir hafa framið og hafa samviskubit yfir. Stjórnandi áhugamálsins tekur skýrt fram að þarna er ekki endilega verið að tala um syndir í biblíulegum skilningi. Nú læt ég liggja á milli hluta hvort hægt sé að ræða um synd í öðru samhengi en biblíulegu og þá sérstaklega í kristilegu, en ætla sjálfur að reyna að átta mig á henni í sínu kristilega samhengi. Nú eru sjálfsagt margir sem hafna kristni...

Glæpur -Hvað er það? (22 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég veit ekki til þess að til sé ein einhlít skilgreining á glæp. Það má þó setja fram ákveðna forsendur fyrir því afhverju tiltekin hegðun flokkast undir glæp eða ekki. Ég held að ein af grundvallar forsendum þess að eitthvað teljist til glæps er að einhverjir séu fórnarlömb hegðunarinnar. Ef það er ekkert fórnarlamb þá er engin glæpur. Vandin hér er að ýmislegt sem telst vera glæpsamleg hegðun, virðist fremur vera sett í forvarnarskyni en að til sé eiginlegt fórnarlamb. Dæmi um þetta getur...

Heimurinn og forritið (15 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég ætla ekki að staðhæfa hér að við lifum í forriti. Sé tekið mið af möguleikum tækninnar, þá er það vel hugsanlegur möguleiki. En það er líka margt annað sem er hugsanlegt en er ekki rétt. Ég ætla hins vegar að leika mér að hugmyndinni um að grunneingar heimsins eru upplýsingar, þ.e. orð en hvorki efni né orka. Með frægri jöfnu, e=mc^2 sýnir Albert fram á að efni er í raun bara orka á sérstöku formi. Atóm efnisins er í raun orkuagnir. Þessar orkuagnir raðast saman eftir ákveðinni reglu og...

Velferðakerfi fyrirtækjanna (29 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Nú er það orðið morgunljóst að ríkisstjórnarflokkarnir tveir framsókn og sjálfstæðis eru velferðaflokkar fyrirtækjanna. Boðuð skattalækkun þeirra virðist ekki eiga að hafa annan tilgang en sem útspil atvinnurekenda í komandi kosningum, eða nokkurn vegin með orðum forsætisráðherra: “Skattalækkanir verða ákveðnar nánar í sambandi við kjarasamninga”. Þannig ætlar ríkisvaldið að greiða niður laun landsmanna. Tromp sem launagreiðendur hafa uppi í erminni við komandi kjarasamninga, til að halda...

Örlög Alþýðuflokks og Samfylkingar (19 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég hef nokkuð verið að velta fyrir mér hvort örlög Samfylkingarinnar ætli að verða þau sömu og örlög Alþýðuflokksins. Alþýðuflokkurinn náði aldrei fullu risi vegna kröfu hans um markaðvæðingu landbúnaðarins og frjáls innfluttnings á landbúnaðarvörum. Íhaldssamir varðhundar úreltra hugmynda stóðu vörð um staðnað kerfi hafta og miðstýringar. Nú geta getgátur einar sagt okkur til um það hvort frjáls markaðsleið í landbúnaði hefði breytt stöðu íslensks landbúnaðar frá því sem hann er í dag. Það...

Hvað gerist næstu 4 ár? (22 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég held að það sé nokkuð ljóst að ríkisstjórn framsóknar og sjálfstæðis muni sitja næstu 4 árin. En þetta verða erfið ár, svona eins og dauðateygjur. Sjálfstæðisflokkurinn mun standa frami fyrir kreppu og óvíst hversu öflugur hann verður að loknu kjörtímabilinu. Flokkurinn skorar þetta lágt, þrátt fyrir að vera með sinn öflugasta leiðtoga um áratugi, hvað gerist þá eftir 4 ár? Stjórnarsetan er ekki fýsileg fyrir flokkinn, en stjórnarandstaða ekki heldur. Flokkurinn hefur ekki lengur...

Trollarar (4 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Vil gera athugasemdir við ritstjórn dægurmála. Það á ekki að hleypa augljósum trollum í gegnum ritskoðun. Á netinu gilda ákveðnir siðir og troll er eitt af því sem ekki er liðið. Og hvað er troll, jú það eru umræðuþrjótar sem koma af stað uppþotum á umræðuvefum með því að koma af stað ómálefnalegum umræðum sem hafa ekkert annað á bakvið sig en að vera skítkast í stóra hóp þátttakenda umræðuhópanna. Slík skrif eru auðþekkjanleg, eins og það er auðþekkjanlegt þegar einhver er að stofna til...

Er íslenska gott tungumál fyrir heimspeki? (0 álit)

í Heimspeki fyrir 21 árum, 9 mánuðum

Skattalækun og hvað? (63 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Það er ekki laust við að það setji að mér hroll þegar Davíð Oddsson boðar skattalækkun upp á 21 milljarð króna án þess að tilgreint sé hvar eigi að skera niður. Ég einfaldlega treysti ekki stjórnmálaflokki sem hefur gert einhverja grófustu atlögu að velferðaríkinu frá því að til þess var stofnað. Velferðaþjónusta okkar stefnir hraðbyr í átt að bandaríska beiningakerfinu þar sem um 10% þjóðarinnar er föst í fátækragildru. Þetta er einfaldlega ekki sú sýn sem ég hef á íslenska velferðaríkið....

Hinir hugrökku! (26 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Já mikið er nú gaman að vera lítill feitur kall og vera í hópi hinna hugrökku. Já mikið er gaman að vera í hópi hinna staðföstu og viljugu. Já mikið er gaman að vera í hópi góðmenna sem gefa ordur um að sprengja forsetahallir og bjarga örmagna þjóð undan hinum huglausu. Já mikið er gaman að vera lítill feitur kall heima á Íslandi og á Bretlandi og í Bandaríkjunum. Já það er gaman að vera hugrakkur og æsa til stríðs. Etja ungt og efnilegt fólk út í foraðið, blása því stríðsandann í brjósti og...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok