Vona að einhver nenni að lesa þessa langloku, þarf hjálp strax plíís! Okei til að byrja þá er ég 17 ára drengur utan af landi. Ég kynntist þessari yndislegu stelpu um daginn á netinu. Töluðum ýkt mikið saman og hún sendi myndir af sér og bara þetta venjulega þegar fólk er að hittast á netinu. Allavega þá náðum við geðveikt vel saman og til dæmis töluðum við í 5 tíma stanslaust á msn. Get ekki hitt hana þar sem ég þyrfti að fara á bát til hennar. Þið fattið. Annaðhvort okkar á heima á eyju ;)...