bara smá flipp á mynstri og tilraunaskap býst ég við en samt sannleikurinn: Fyrst: ………………………………………………………. Í gerjun: bííb…………bííb………….bííb…………..bííb Á meðan bííb…bííb…bííb…bííb…bííb…bííb….bííb…. Rétt eftir: bííb…….bííb………bííb…….bííb……..bííb…. Aðeins seinna: bííb………………….bííb…………………..bííb… Nú: …………………………………………………………..
í dögginni glitrar á rauðleitar hlíðar dalsins skornar og lokkandi hlíðarnar mjúkar og meirar syngja til mín fögur orð djúpt í dalnum undir sprungu býr allur hitinn, öll ólgan sem þeir sækjast eftir þar á meðal ég
ei lát veðrið á þig fá ó þó fjúki öll þau strá sem þú treystir ávallt á og eitt sinn voru há þó er eitt sem aldrei fýkur en með tíma regnið drýpur og áður en að yfir lýkur eyðist steinn sem aldrei strýkur?
Heiðin unaðs undur var upp ég fór í geima lækir drjúgir dreypa’ í mar dropar minna steina … Aldrei aftur? Enginn veit Hvergi farið angur er undir lás og slá laust úr draumi dreyminn fer dreginn burtu frá … Allt er hljótt, ekki píb Hvenær það ég eignast aftur umber get það ei leitt finnst ei ég duga djarfur drukknar Freyjar fley? … Allt að engu? Ekki trúi
Gengum burtu brott frá kringlu átt að húsi hvít var jörðin komum inn en kvöddumst ekki meira er sem móða ein faðmar finnast fingur læsast augun mætast undan lítum endurtökum aftur aftur þar til loksins því að kemur fyrsta sinn fram fór á gangi fattaði’ ekki á stundinni kom á óvart er málhringir hittust kynntust komu saman en svo aftur endurtók sig yndislegur unaðurinn varð svo glaður gleðin við að fá þá loksins þig að kyssa vildi’ ég gæti verið áfram hjá þér ávallt aldrei farið knúsað meira...
Ég skil vel af hverju fólk kýs nafnleynd á netinu svo það geti tjáð sig óheft. Flott flott og allt í góðu þar. En útaf hvaða mögulegu ástæðu vill fólk fela aldur sinn? Skammast sín? Persónulega finnst mér að það ætti að gera útaf við þann möguleika að geta falið aldur sinn hér á huga til þessa að fá fólk út úr sinni skel. Aldur ætti ekki að hafa nein áhrif á tjáningargetu þína á netinu svipað og nafnleynd gerir.
Tvíeggja hulin tvíræðni, er togar báðar áttir í. Falin hefur, hvergi er. Ber Hulduheima bak við ský. Hvar er allur hugur ver horfinn er og flugið. Angur dælu fyrir fer. Freyja hefur hulið. 10/11/2004
Það hefur nú náð athygli minni að ljóð sem við semjum og sendum sem grein á áhugamálið og fáum samþykkt fáum við ekki inná lista okkar yfir greinar sem við höfum skrifað. Af hverju ekki? Eru ljóðin ekki jafn merkileg og grein sem gagnrýnir tónlist, kvikmyndir eða bækur eða fjallar um einhverja herkænsku aðferð í tölvuleik? Ég bara spyr. Mér finnst að stjórnendur hér ættu að koma því að að fá ljóðin okkar viðurkennd sem innsendar greinar. Ég sé bara enga ástæðu fyrir þessu.
Koma öllu út úr mér á ég erfitt með, að trúa öllu aflraun er því sem hefur skeð en unað gaf það yndis kel eftir þessa bið, það var allt þegið vel þótt meiru mætti við Magnús Ben 08/12/2004
Sá sem ekki setur bítlana á listan hjá sér eða Elvis hefur einfaldlega bara rangt fyrir sér og ef þið ætlið að segja að þetta fer líka eftir persónulegu áliti þá hefur persónulegt álit ekki áhrif á staðreyndir.
——————— Gottlieb und Uta, treffen in Utah ——————— Gottlieb und Uta, heiraten in Utah ——————— Gottlieb und Uta, leben in Utah ——————— Gottlieb und Uta, sterben in Utah ||||||||||||||||||||| Sturla og Magnús Ben
Í íþróttamiðstöðinni Varmá í Mosfellsbæ rakst ég á skrítið fyrirbæri: stóla sem falla saman til að auðveldara sé að geyma þá þegar þeir eru ekki í notkun. Þetta er í sjálfu sér ekki mjög athyglisvert en það sem gerir þessa stól svona skrítna er það að þegar þú grípur í enda setunar til að lyfta henni upp og leggja stólinn saman þá er það ekki hægt. Hvað á það að þýða að maður þurfi að ýta setunni niður á við til að leggja stólinn saman þetta hef ég bara aldrei séð áður. Ég minntist á þetta...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..