Hafið þið einhvern tímann hlustað á textann “Fram á nótt” með Ný Dönsk, það er ekki erfitt að skilja hvað Björn Jörundur er að segja og að hann þekkir það af eigin reynslu….. Ég var lagður í einelti öll mín ár í grunnskóla, ég reyndi allt sem ég mér datt í hug til að koma í veg fyrir það, ég barði á móti, ég barði ekki á móti, ég klagaði og að lokum varði ég mig bara með kaldhæðni. Það virkaði illa fyrir mig að berja á móti, viðbrögð skólans við því voru að senda mig til sálfræðings, þá...