Sæl verið þið. Mig langar til að vita hvort einhver ykkar kannast við eftirfarandi vandamálalýsingu, eða hluta hennar: Ég nota Norton Internet Security eldvegg og vírusvarnar hugbúnað. Undanfarna mánuði, hefur það þráfaldlega komið fyrir, stundum einusinni á dag stundum oft á dag, að tenging Microsoft Outlook og Explorer hafa misst samband við nettenginguna, sem samt hangir uppi, og hleypir til dæmis inn sjálfvirkum uppfærslum frá Norton og Microsoft, en útilokar á sama tíma, að ég komist í...