Þegar Gerald vaknaði var hann staddur í myrkruðu herbergi. Hann lá hálfnakinn uppi í stóru rúmi. Dregið var fyrir gluggann þannig að ekkert ljós komst inn, eina ljósið í herberginu kom frá ótal kertum sem dreifð voru um herbergið, á skrifborðinu, báðum náttborðunum sem voru sitthvoru megin við rúmið, á hillum, tugir voru á gólfinu. Herbergið einkenndist af dökkum litum. Rúmið var með svörtu teppi breitt yfir það og úr dökkum við. Hillurnar, náttborðin, skrifborðið og báðir stólarnir voru úr...