Nemandi í 9.bekk spurði eitt sinn kennara sinn að því hvort hann vissi hvað væri lint og þurrt þegar það væri ekki í notkun, en blautt og stíft þegar það væri í notkun. Kennarinn blóðroðnaði í framann og ætlaði að rjúka upp úr sæti sínu til að húðskamma viðkomandi nemanda fyrir klámyrði, en sá síðarnefndi varð þá fyrri til og sagði: “það er regnhlíf, maður.” Er lítil telpa kom heim til sín eftir fyrsta daginn í skólanum tilkynnti hún móður sinni að hún sæti hliðina á strák. Móðirin vildi nú...