Góðan dag, ég hef verið að spila Warhammer Fantasy svona on-og-off í bráðum 15 ár, og hef oft losað mig við mína heri og talið mig hættan og þurft að byrja að safna aftur. En nú hef ég ekki spilað í dágóðan tíma, og reikna ekki með m.a. vegna fjölskylduaðstæðna, að ég muni spila aftur. Ég vil að einhver njóti góðs af þessu og því ætla ég að gefa allt mitt Warhammer hafurtask. Ég safnaði nú síðast O&Gs og Empire og á ýmislegt fyrir hvorn her, ég hef ekki skoðað þetta nýlega en þetta...