Heiðar Davíð Bragason, kylfingur úr GKj, lék fyrsta hringinn á Opna Kinnaborg mótinu í Svíþjóð á 69 höggum, eða einu höggi undir pari og er í toppbaráttunni. Hann lék fyrri níu holurnar á einu höggi yfir pari og seinni níu á tveimur höggum undir pari. Frábær byrjun hjá íslenska kylfingnum. Hann spilaði stöðugt og gott golf; fékk aðeins einn skolla á hringnum (5. holu), tvo fugla (12. og 15. holu) og 15 pör. Heiðar er í 6.-14. sæti sem stendur, en um þriðjungur keppenda á enn eftir að ljúka...