Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Er "BARA" svar? (0 álit)

í Heimspeki fyrir 23 árum

verkfall tónlistarkennara (15 álit)

í Hljóðfæri fyrir 23 árum, 1 mánuði
Eins og flest allir vita þá er verkfall hjá tónlistarkennurum núna… Ég persónulega efast um að ég lifi það af, ef það verður mikið lengur (ég veit það eru bara liðnir tveir dagar.. en samt) En hvað getum við gert?! Þeir sem eru á sama báti og ég, í tónlistarnámi og ELSKA það, eru þið með einhverjar hugmyndir? Ég meina.. ég skil tilgang tónlistarkennaranna…. þeir eru á skítalaunum… en ég vil bara komast í tímana mína!!! argastagarg!! Hjálp!! Endilega komið með hugmyndir, hvað er hægt að gera?...

Hvað hefur verið að gerast? (3 álit)

í Sápur fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég er svona inn og út Nágranni, tek stundum svona syrpu ef ég hef ekkert að gera á sunnudegi horfi ég á þættina.. en núna langar mig að vita, því ég er núna að endurnýja kynnin eftir LAAANGA pásu, hvað koma upp á á milli Drew og Libby? og ef eitthvað hefur verið að gerast undanfarið sem væri betra að vita endilega tell me! Ég er ekki búin að horfa… trúlega síðan í… apríl… eða maí.. allaveganna ekki lengi! kveðja kvkhamlet

Hreindýrakjöt!! (1 álit)

í Matargerð fyrir 23 árum, 1 mánuði
Mig langaði að vita hvort það væri einhver áhugi hér af hugverjum að kaupa hreindýra kjöt, kg verð er ekki ákveðið.. en ef einhver áhugi er á þessu, endilega láta mig vita!!

nafnleysa (2 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 1 mánuði
hmm.. ég er bara í stuði… hérna er eitt ljóð, var að læra fyrir próf… gleymdi mér smá og fór að krota.. well here it goes: Ég veit við getum ekki verið saman Ég veit við eigum enga von Þó líður tíminn, þetta' er svo gaman En þú átt þegar fyrir son En augun segja eitthvað annað Eitthvað sem þú hugsar nú Ef þú gætir bara hug þinn kannað ég bíð þín alltaf í von og trú og ég hélt áfram að krota, og hérna er annað sem ég setti saman í dag (ég á eftir að falla á þessu prófi!!) Finnst þér ekki...

ónafngreint ljóð (5 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 1 mánuði
Í hyldýpi hugans og myrkur um kring ég næ ekk'að anda og sé ekki neinn ég snýst og höfuðið fer hring eftir hring ég ríf mig upp en er alltof seinn Enginn er nálægt, hjartað er brostið einn inn í sálinni, feta mig fram einn inn í kulda, einn og frostið Kuldinn sem enginn vill verma þetta er frumraun mín, og þess vegna þætti mér vænt um ef þig gætuð komið með einhver komment á þetta… maður lærir af mistökunum, er það ekki? :) Kveðja kvkhamlet

Orðaleikir (6 álit)

í Heimspeki fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég fór mikið að hugsa, eftir að vinur minn benti mér á orðið uppskurður… Hvað felst í orðinu?! Í rauninni er verið að skera NIÐUR, ekki upp… Upp í hvað?! Svo er það orðið hár… það er virkilega pirrandi orð! Ef maður setur greini við hár, þ.e.a.s. höfuðhári, þá er það “hárið” en aftur á móti talar maður um “skaphár-IN”!!!! Er einhver góð skýring við þessu?! Á þetta kannski ekki við um heimspeki?

Ertu ánægð(ur) með vaxtarlag þitt? (0 álit)

í Heilsa fyrir 23 árum, 1 mánuði

Gulrótakaka (3 álit)

í Matargerð fyrir 23 árum, 1 mánuði
Þetta er frekar einföld, en samt rosalega góð gulrótakaka… Botn: 2 egg 2 dl sykur 2 dl hveiti 1-2 tsk vanillusykur 1 tsk natron 1 tsk lyftiduft 3 dl gulrætur 1 dl matarolía Krem: 2 dl flórsykur 1 msk borðsmjör 200 gr rjómaostur 1 tsk vanillusykur En athugið að þetta er fyrir einn botn, í 2fald köku þarf því að 2falda allt, líka kremið… meðhöndlun á botninum: Öllu hrært saman, gulræturnar síðast. Bakað í 40 mín við 175° í miðjum ofni kremið sett á þegar kakan hefur kólnað vel. Bæði er gott að...

Ertu fashion victim? (0 álit)

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 1 mánuði

Hvað er uppáhalds tískutímabilið þitt? (0 álit)

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 2 mánuðum

The list (22 álit)

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég veit ekki hvað er búið að útjaska þessu hundrað þúsund milljón sinnum, en þetta er vinsæll leikur hjá vinahóp mínum… Hvaða 5 frægu stjörnur vilduð þið sofa hjá? Minn listi 1. Dewin Sawa (eða eitthvað svoleiðis) 2. Mel Gibson 3. Brad Pitt 4. Heath Ledge (heitir hann það ekki annars?! ég er orðin alltof þreytt, ætti bara að fara að sofa!!!) 5. Villi í 200.000 naglbítum (ég veit hann myndi kannski ekki flokkast undir stjörnu, en hann er svo floooottur!!) Svo er maður alltaf að muna eftir...

Textar (2 álit)

í Hljóðfæri fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Jújú ætli þessi grein passi ekki ágætlega undir Hljóðfæri… því tæknilega séð er röddin hljóðfæri! Jæja enívei, ég semsagt spila á míkrófón, og er að safna textum. Ef einhver lumar á einhverjum textum, þá þætti mér vænt um að fá kannski eitt stykki eða fleiri frá ÞÉR! Skemmtilegast væri ef þeir væru íslenskir, en ég er fátækust af íslensku textunum. Með fyrirfram þökk Kvkhamlet

"Að þrauka" (6 álit)

í Raunveruleikaþættir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hvað er gott íslenskt orð yfir Survivor? Að þrauka? Að bjargast? Ehh allaveganna… Ég verð bara að viðurkenna það að ég hef ekki séð einn einasta survivor þátt!!! En aftur á móti langar mig alveg ógeðslega í þáttinn!! Vinkona mín segir að ég sé þessi dæmigerða manneskja í þáttinn. Ég myndi éta pöddur ef ég þyrfti þess og svoleiðis… ég veit það nú ekki alveg… en það er margt sem ég myndi hiklaust gera bara til þess að fá “kikkið” út úr því. Ég myndi “fíla” mig alveg geðveikt að þurfa að vaða...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok