…þegar maður er veikur en ekki með hita! Í örvæntingu minni í gærmorgun greip ég mælinn því ég hélt að ég væri orðin fárveik, en neinei aðeins sex kommur, svo ég fór í vinnuna, með dúndrandi hausverk, og svima, sem er eitthvað sem ég hefði kannski ekki átt að gera, því þegar ég kom heim eftir vinnu var ég alveg bakk, með beinverki, hausverk, og svima, en samt bara átta kommur. Ég reyndi að sofa þetta úr mér, svaf frá kvöldmat í gær, til sjö í morgun, því ég ætlaði að mæta í vinnuna, mældi...