Shane Mosley, sem sumir segja eina manninn sem í raun hefur sigrað Oscar de la Hoya, þótti Gulldrengurinn ekkert sértaklega tilkomumikill á Laugardaginn. “Hann var ekki eins skarpur og hann var einu sinni,” sagði Mosley eftir að De la Hoya vann sinn besta sigur á ferlinum með tæknilegu rothöggi á Fernando Vargas í 11. lotu. “Hann virkaði ekki eins öflugur,” sagði Mosley, sem verður næsti andstæðingur De la Hoya, nema Felix Trinidad hætti við að hætta. Hann sagði að De la Hoya virkaði ekki...