hmmm…Veit eiginlega ekki hvar skal byrja, en jæja. Nú hef ég reykt síðan ég var 14 ára. Ég reyki enn eftir rúm 10 ár. Nú er svo komið að mig langar að hætta þessu. Ég hef aldrei reynt að hætta og hef alltaf reykt mikið, satt best að segja er ég alger fíkill og reyki meira en flestir sem ég hef kynnst. Muniði eftir gæjunum úr myndinni “Englar Alheimsins” sem keðjureyktu allan daginn? Það er ég… T.d. byrjar dagurinn hjá mér svona: Ég vakna, kveiki mér í, borða morgunmat, reyki aðra eftir...