Nú á dögunum var stofnaður nýr stjórnmálaflokkur. Ber hann heitið ‘Íslandshreyfingin - lifandi land’, og formaður þess flokks er Ómar Ragnarsson. Sjálfur mun hann leiða lista Reykjavíkur Suðurs, en Margrét Sverrisdóttir Norðurs. Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon verður svo fulltrúi Suð-vestur hluta landsins. Íslandshreyfingin.. ..vill fjölbreytt, framsækið, skapandi og réttlátt samfélag. Samfélag þar sem frelsi einstaklingsins, samábyrgð, menntun og sjálfbærni tryggja lífsgæði fólksins...