Ég set fyrsta þátt með svo þeir sem hafa ekki lesið hann þurfi ekki að fara ða leita að honum :) Segið mér endilega hvað ykkur finnst. Hekla settist við barinn og fól andlitið í höndum sér. Hún vissi alveg að hún mátti ekki vera þarna. Hún var of ung. En hún gat ekki farið aftur út. Hann beið eftir henni. Hann neitaði að fara og kvaðst verða að útskýra. Eina ástæðan fyrir því að hann hafði ekki elt hana inn var út af því að hann gat ekki skilið hundinn eftir. Helvítis hundurinn. Stundum...